Um okkur

Velkomin í Rjupa Design

Við hjónin stöndum að baki Rjupa Design, þar sem við búum til námstæki sem hjálpa börnum og fullorðnum að læra táknmál á skemmtilegan og áþreifanlegan hátt.

Okkar hugmynd

Við trúum því að fólk lærir best með því að snerta og upplifa hlutina í raun og veru - ekki bara að horfa á myndir. Þess vegna hönnuðum við sérstök námstæki eins og stafrófið og lyklakippur sem gera námið lifandi og skemmtilegt.

Hvernig við búum til

Við notum 3D prentun til að búa til námstækin okkar. Þetta gerir okkur kleift að framleiða nákvæmar og endingargóðar handfórmur sem endurspegla raunverulegar handstöður í táknmáli.

Fyrir hvern?

Vörurnar okkar eru hannaðar fyrir alla - bæði döff og heyrandi, börn sem eru að byrja að læra táknmál og fullorðna sem vilja þróast og dýpka skilning sinn. Með áþreifanlegum námstækjum verður námið skemmtilegra og árangursríkara.

Okkar markmið

Við viljum gera táknmál aðgengilegt fyrir alla og hjálpa fólki að læra og þróast með tímanum. Hvert námstæki er hannað með umhyggju til að styðja við námsferlið og gera það ánægjulegra.

Hafðu samband ef þú hefur spurningar eða vilt vita meira um námstækin okkar.